Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 27. nóvember 2015 16:00
Elvar Geir Magnússon
Godsamskipti
Mynd: Twitter
Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter í boði Vodafone. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.

Notið kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter en færslurnar í pakka dagsins eru allar merktar með því merki. Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet



Vilhjálmur Jónsson, fótboltaáhugamaður:
Í Evrópudeildinni í gær var gula spjaldinu lyft 103 sinnum og rau'a spjaldinu 5 sinnum #fotboltinet

Elmar Ernir, stuðningsmaður Man Utd:
Er nú þegar orðinn pirraður á því þegar Fellaini kemur inná á 65 mín. á morgun. #fotbolti #fotboltinet

Aron Steinn, stuðningsmaður Liverpool:
Markmaður til sölu eða gefins, fæst ódýrt. Gengur undir nafninu Simon Mignolet. Getur ekki rassgat. Skemmir lið. #fotboltinet

Magnús Halldór Pálsson, fótboltaáhugamaður:
Hugmynd að #jólatwitter fyrir Púllara.
Höfuð Mignolet á fati og nýjan markvörð á janúarútsölu.
#fotboltinet

Örvar Arnarsson, fréttaritari Fótbolta.net í Austurríki:
Að taka viðtal við Klopp virðist vera draumur. Alltaf sleggjur og alltaf næs gaur. Einstakur hæfileiki. #fotboltinet

Gudmundur Guðjónsson, stuðningsmaður Liverpool:
Ég myndi án gríns ekki kippa mér upp við að Sturridge myndi leggja skóna á hilluna á næsta ári. #fotboltinet #meiðslapési

Daníel Geir Moritz, fótboltaáhugamaður:
Sem stuðningsmaður Fjarðabyggðar var ég að spá hvort einhver hérna eigi takkaskó? Er að reyna að smala í lið #fotboltinet

Hjörvar Hafliðason, Stöð 2 Sport:
@DanelGeirMoritz ég skal gefa þér skó. Sondico úr alvöru leðri.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner