mið 27. desember 2017 07:45
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Britton: Erfitt að horfa upp á þetta eftir að hafa verið hér lengi
Mynd: Getty Images
Leon Britton sem er tekinn tímabundið við stjórastarfinu hjá Swansea var að vonum vonsvikinn eftir stórt tap gegn Liverpool í gær.

Britton sem hefur verið hjá Swansea í mörg ár segir það erfitt að horfa upp stöðu liðsins þessa dagana en liðið er í stjóraleit eftir að hafa rekið Paul Clement.

„Eftir að við fengum á okkur annað markið gerðum við mörg mistök, það er óásættanlegt."

„Seinni hálfleikurinn var miklu verri, þegar ég hugsa um þennan seinni hálfleik líður mér illa. Það er erfitt að horfa upp á þetta eftir að hafa verið hér í langan tíma."

„Eftir annað markið misstu leikmennirnir trúna á verkefninu en þeir verða að halda haus í svona stöðu, maður verður að halda áfram, maður verður að gefa allt sem maður á," sagði Leon Britton
Athugasemdir
banner
banner
banner