mið 27. desember 2017 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Marco Silva: Ég er ekki ánægðasti maðurinn í heiminum
Mynd: Getty Images
Marco Silva knattspyrnustjór Watford gat verið nokkuð sáttur í gær eftir sigur liðsins á Leicester.

Watford lenti undir í leiknum en kom til baka og vann að lokum 2-1 sigur.

„Við misstum ekki trúna þrátt fyrir að hafa lent undir, og við unnum leikinn. Ég get hins vegar ekki sagt að ég sé ánægðasti maðurinn í heiminum."

„Leicester er með mikið gæða lið. Þetta var mikill baráttu leikur og erfiður. Ég held að það hafi skipt miklu máli að jafna rétt fyrir hálfleik," sagði Silva.

Watford er nú í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 25 stig, þeir mæta næst Swansea þann 30. desember.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner