Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. desember 2017 18:01
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Aaron Ramsey keypti dýrasta húsið í Wales
Aaron Ramsey varð bikarmeistari með Arsenal 2017.
Aaron Ramsey varð bikarmeistari með Arsenal 2017.
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal, getur státað sig af því að eiga dýrasta heimili í Wales.

Húsið var sett á sölu fyrir 4,5 milljónir punda en Ramsey fékk það á 3,1 milljón punda.

Fimm svefnherbergi eru í þessu glæsilega húsi.

Þá er þriggja holu æfingagolfvöllur fyrir utan en Ramsey er mikill golfáhugamaður og slær yfirleitt kúlur þegar hann fer í frí.

Einnig er tennisvöllur fyrir utan húsið og glæsileg sundleg með heitum potti og gufubaði.

Sjáðu myndirnar!
Athugasemdir
banner
banner
banner