Fotbolti.net
28.01.14 - 13:42
Magnús Már Einarsson

Alfreð í bann fyrir atvik í upphitun?

Alfreð í bann fyrir atvik í upphitun?
Canon

Mynd: Getty Images

Alfreð Finnbogason, framherji Heerenveen, gæti átt yfir höfði sér refsingu vegna handahreyfingar sem hann gerði í upphitun fyrir grannaslaginn gegn gegn SC Cambuur síðastliðinn sunnudag.

Alfreð gerði hreyfingu í átt að stuðningsmönnum Cambuur þar sem hann virtist senda þeim tóninn en hreyfinguna má sjá hér að neðan.

Samkvæmt frétt Foksport hefur hollenska knattspyrnusambandið ákveðið að rannsaka málið en Alfreð og Heerenveen fá tíma fram að hádegi á morgun til að svara fyrir sig.
Heerenveen tapaði leiknum á sunnudag 3-1 en Alfreð skoraði mark liðsins í leiknum. Alfreð hefur farið á kostum á tímabilinu en hann er markahæstur í Hollandi með nítján mörk.

Hér að neðan má sjá handahreyfingu Alfreðs.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.