Atletico Madrid tekur á móti Barcelona í eina leik kvöldsins í spænska Konungsbikarnum.
Liðin mætast í 8-liða úrslitum eftir að Barcelona sló Elche úr leik í 16-liða úrslitum á meðan Atletico lagði erkifjendurna í Real Madrid af velli.
Liðin mætast í 8-liða úrslitum eftir að Barcelona sló Elche úr leik í 16-liða úrslitum á meðan Atletico lagði erkifjendurna í Real Madrid af velli.
Barcelona vann fyrri viðureignina 1-0 á heimavelli svo nú er komið að Diego Simeone og lærisveinum hans að spila á heimavelli.
Fernando Torres virðist vaknaður aftur til lífsins og byrjar fremstur hjá heimamönnum á meðan Luis Suarez, Lionel Messi og Neymar mynda gífurlega öfluga sóknarlínu gestanna.
Atletico Madrid: Oblak, Juanfran, Gimenez, Miranda, Siqueira, Mario, Gabi, Turan, Garcia, Griezmann, Torres
Barcelona: Ter Stegen, Pique, Alba, Alves, Mascherano, Rakitic, Busquets, Iniesta, Suarez, Messi, Neymar
Athugasemdir