Branislav Ivanovic var hetja Chelsea í 1-0 sigrinum gegn Liverpool í undanúrslitum enska deildabikarsins í gær.
Serbneski landsliðsmaðurinn skallaði Chelsea í úrslitin með marki snemma í framlengingu og viðurkennir að leikurinn hafi verið erfiður.
Serbneski landsliðsmaðurinn skallaði Chelsea í úrslitin með marki snemma í framlengingu og viðurkennir að leikurinn hafi verið erfiður.
,,Þetta var mjög erfiður leikur. Við erum ánægðir með að vera á leið á Wembley," sagði Ivanovic.
,,Í þessum leik sýndi liðið sinn sanna karakter. Ég er ánægður með að hafa skorað en þessi leikur er fyrst og fremst gott dæmi um hvað við þurfum að gera til að vinna leiki."
Athugasemdir