Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 28. janúar 2015 12:15
Magnús Már Einarsson
Mourinho sektaður fyrir ummæli sín
Sektin hefur ekki mikil áhrif á fjárhag Mourinho.
Sektin hefur ekki mikil áhrif á fjárhag Mourinho.
Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnusambandið hefur sektað Jose Mourinho, stjóra Chelsea, um 25 þúsund pund eða um fimm milljónir króna fyrir ummæli hans eftir leik gegn Southampton í síðasta mánuði.

Mourinho var brjálaður eftir að Cesc Fabregas var bókaður fyrir leikaraskap þegar hann átti að fá vítaspyrnu.

,,Allir vita að þetta var vítaspyrna," sagði Mourinho reiður eftir leikinn.

,,Það er herferð í gangi gegn Chelsea. Ég veit ekki af hverju þessi herferð er og mér er sama."

Mourinho hefur nú verið sektaður fyrir ummælin og þá hefur hann fengið þau skilaboð að haga sér betur i í framtíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner