Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 28. janúar 2015 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Nice með furðulega vörn gegn aukaspyrnum
Mynd: Getty Images
Varalið franska liðsins Nice stillti stórfurðulega upp til að verjast aukaspyrnu í leik gegn Grenoble um helgina.

Varnartaktíkin virkar þannig að fimm stórir leikmenn koma sér fyrir á marklínunni, fimm menn verja svæði inni í teig og markvörðurinn stendur tilbúinn til átaka rétt fyrir utan markteiginn.

Taktíkin gekk upp eins og má sjá á myndbandinu hér fyrir neðan en það væri virkilega gaman að sjá hvernig þessari vörn gengi á móti skoti frá Cristiano Ronaldo eða öðrum aukaspyrnusérfræðingi.


Athugasemdir
banner
banner