Jonathan Pereira, leikmaður Villarreal á láni hjá Real Valladolid, skoraði þrennu er Valladolid lagði Mallorca af velli í næstefstu deild á Spáni.
Valladolid er í toppbaráttunni og vann leikinn gegn miðdeildarliði Mallorca 5-1.
Valladolid er í toppbaráttunni og vann leikinn gegn miðdeildarliði Mallorca 5-1.
Eitt marka Pereira í leiknum var þrælmagnað og minnir einna helst á mark sem Dennis Bergkamp skoraði á sínum tíma með Arsenal gegn Newcastle United.
Mark Pereira má sjá hér fyrir neðan, þar sem hann leikur glæsilega á varnarmann áður en hann skorar.
Athugasemdir