Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. janúar 2015 16:23
Elvar Geir Magnússon
Verður dregið í kvöld um hverjir fara áfram?
Gervinho fagnar með stuðningsmanni.
Gervinho fagnar með stuðningsmanni.
Mynd: AFP/Getty
Lokaumferð D-riðils Afríkumótsins fer fram í kvöld en fyrir umferðina eru öll fjögur liðin í nákvæmlega sömu stöðu.

Allir leikir riðilsins hafa endað með 1-1 jafntefli og ef það verður niðurstaðan í báðum leikjunum í kvöld enda öll lið með 3 stig og markatöluna 3-3. Þá verður dregið um hvaða tvö lið fara áfram.

Kamerún mætir Fílabeinsströndinni og Gína mætir Malí en báðir leikir hefjast klukkan 18.

Svipuð staða gæti komið upp og á Afríkumótinu 1988 en þá þurfti að draga og kom Alsír upp úr hattinum en Fílabeinsströndin sat eftir.

Þess má geta að Cheick Tiote og Gervinho verða í leikbanni og spila ekki með Fílabeinsströndinni í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner