Viðureign Atletico Madrid og Barcelona er í fullu fjöri þar sem staðan er 1-1 og þurfa heimamenn að skora tvö mörk í viðbót til að komast áfram.
Fernando Torres kom Atletico yfir en Neymar jafnaði eftir laglegt samspil við Luis Suarez og Lionel Messi.
Fernando Torres kom Atletico yfir en Neymar jafnaði eftir laglegt samspil við Luis Suarez og Lionel Messi.
Það vantar klárlega ekki mörk í leikinn og náði skemmtanagildið nánast hámarki þegar Jordi Alba varð fyrir því óláni að vera sleginn í hausinn af línuverðinum, sem missti flaggið við höggið.
Athugasemdir