Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. febrúar 2015 16:51
Arnar Geir Halldórsson
Spánn: Barcelona kláraði Granada
Þrír góðir
Þrír góðir
Mynd: Getty Images
Granada CF 1 - 3 Barcelona
0-1 Ivan Rakitic ('25 )
0-2 Luis Suarez ('48 )
1-2 Fran Rico ('53 , víti)
1-3 Lionel Andres Messi ('70 )

Barcelona heimsótti Granada í La Liga í dag en þarna voru að mætast næstefsta og næstneðsta lið deildarinnar.

Króatinn Ivan Rakitic kom Börsungum yfir eftir 25 mínútna leik og staðan í hálfleik 1-0 fyrir gestunum.

Seinni hálfleikur var aðeins þriggja mínútna gamall þegar Luis Suarez tvöfaldaði forystuna fyrir Barcelona. Fimm mínútum síðar minnkuðu heimamenn muninn með marki úr vítaspyrnu.

Lionel Messi innsiglaði svo sigur Börsunga á 70.mínútu og eru þeir nú aðeins stigi á eftir Real Madrid.

Athugasemdir
banner
banner