Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. febrúar 2015 19:05
Arnar Geir Halldórsson
Spánn: Skoraði fernu á fimmtán mínútum
Alberto Bueno sá um Levante
Alberto Bueno sá um Levante
Mynd: Getty Images
Rayo Vallecano 4 - 2 Levante
0-1 Victor ('13 )
1-1 Alberto Bueno ('23 )
2-1 Alberto Bueno ('32 )
3-1 Alberto Bueno ('33 )
4-1 Alberto Bueno ('38 )
4-2 Kalu Uche ('85 )

Nú er nýlokið leik Rayo Vallecano og Levante í La Liga.

Þessi lið eru í baráttu í neðri hluta deildarinnar en eitt stig skildi liðin að fyrir leikinn í dag. Gestirnir í Levente komust yfir eftir þrettán mínútna leik en eftir rúmlega 20 mínútna leik tók Alberto Bueno yfir leikinn þegar hann skoraði fjögur mörk á fimmtán mínútna kafla. Hreint ótrúlegt.

Bueno fékk svo heiðursskiptingu á 65.mínútu en Kalu Uche klóraði í bakkann fyrir gestina undir lok leiksins.

Bueno er kominn með 12 mörk á leiktíðinni en þessi 26 ára framherji sem ólst upp hjá Real Madrid hefur reynst drjúgur fyrir Rayo sem berst fyrir lífi sínu meðal þeirra bestu.
Athugasemdir
banner
banner
banner