Leik Sportfreuende Lotte og Borussia Dortmund sem átti að fara fram í þýska bikarnum í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs.
Sjókoma varð þess valdandi að ekki var hægt að spila á heimavelli Sportfreunde Lotte.
Liðið spilar í 3. deild en völlur liðsins réði ekki við veðrið.
Dortmund liðið lenti einnig í hremmingum við komuna á völlinn en rúta liðsins festist þá á leið sinni á völlinn en aðstæður þóttu ekki góðar.
Hér að neðan má sjá mynd af vellinum í kvöld.
Die Tribünen sind noch voll. Offiziell wurde es hier den Zuschauern noch nicht mitgeteilt. #sflbvb pic.twitter.com/zfuxoPnMsc
— Stefan Döring (@Doering_Stefan) February 28, 2017
Athugasemdir