Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 28. febrúar 2017 18:30
Elvar Geir Magnússon
Lukaku: Þið sjáið á leik mínum að ég er ánægður
Lukaku er einn öflugasti sóknarmaður Englands.
Lukaku er einn öflugasti sóknarmaður Englands.
Mynd: Getty Images
Belgíski landsliðsmaðurinn Romelu Lukaku segist vera mjög ánægður hjá Everton. Framtíð leikmannsins hefur mikið verið í umræðunni.

Hann var í viðræðum um nýjan samning við Everton og nokkuð er síðan umboðsmaður hans, Mino Raiola, sagði að undirskrift væri handan við hornið.

Lukaku hefur skorað 17 mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og vitað er af miklum áhuga á honum.

„Ég hef algjörlega látið umboðsmann minn um viðræðurnar og ég einbeiti mér að því að spila. Eins og þið sjáið á spilamennsku minni er ég mjög ánægður hérna. Ég einbeiti mér að því að bæta mig. Bestu leikmenn heims eru alltaf að bæta sig," segir Lukaku.

„Ég legg meira á mig en ég gerði og hleyp meira. Ég hef öðlast meiri stöðugleika. Þetta hefur verið mjög lærdómsríkst."

Lukaku hefur aldrei farið leynt með þann draum sinn að spila í Meistaradeildinni. Það hefur ýtt undir sögusagnir um að hann gæti farið frá Everton.

„Maður verður að hafa metnað til að ná því besta fram í sjálfum sér," segir Lukaku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner