Manchester United hefur samið við einn efnilegasta leikmann Wales, Levent Gundogan.
Gundogan hefur verið á reynslu hjá Man. Utd undanfarnar sex vikur en hann vakti fyrst athygli félagsins þegar hann skoraði fjögur mörk í æfingaleik gegn U-14 liði Man. Utd með liði sínu Connah´s Quay Nomads.
Gundogan er 14 ára gamall og spilar sem sókndjarfur miðjumaður. Mörg lið höfðu áhuga á leikmanninum sem ákvað að lokum að semja við enska félagið.
Athugasemdir