Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 28. febrúar 2017 14:00
Magnús Már Einarsson
Ólíklegt að Henderson verði með gegn Arsenal
Mynd: Getty Images
Ólíklegt er að Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, verði með liðinu gegn Arsenal á laugardaginn.

Henderson var fjarri góðu gamni í 3-1 tapinu gegn Leicester í gær vegna meiðsla á fæti.

Henderson var einnig að glíma við meiðsli í janúar en gengi liðsins hefur verið mjög dapurt þegar hann er fjarverandi.

„Það lítur út fyrir að hann verði ekki klár fyrir leikinn gegn Arsenal. Ég er samt ekki viss. Við sjáum til," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Sjá einnig:
Áhugaverð tölfræði Liverpool með og án Henderson
Athugasemdir
banner
banner