Maurico Pochettino segist ekki kippa sér upp við leynihandabönd leikmanna sinna, þvert á móti er hann ánægður með þau og segir þetta efla liðsheild hópsins.
Dele Alli og Heung-Min Son hafa verið mest áberandi hvað varðar þessi handabönd en þeir hafa verið óhræddir við að prufukeyra þau í upphitun og þegar þeir fagna mörkum liðsins.
Dele Alli og Heung-Min Son hafa verið mest áberandi hvað varðar þessi handabönd en þeir hafa verið óhræddir við að prufukeyra þau í upphitun og þegar þeir fagna mörkum liðsins.
Pochettino setti reglu að í hvert skipti sem að leikmennirnir hittast fyrir verða þeir að taka í hendina á hvorum öðrum. Þetta leiddi til þess að einhverjir leikmenn fóru að finna upp á sniðugum handaböndum sem þeir nota sín á milli.
„Að taka í hönd liðsfélaga þíns sýnir virðingu og eflir samband milli leikmanna. Þetta er öflug leið til að byrja daginn á því að sýna liðsfélaga þínum virðingu áður en að þeir takast á við verkefni saman" sagði Pochettino í viðtali við heimasíðu Tottenham.
Athugasemdir