EIður Smári Guðjohnsen kom Íslandi yfir gegn Kasakastan í undankeppni EM í dag.
Eiður er að leika sinn fyrsta leik með íslenska landsliðinu í tæpt eitt og hálft ár.
Eiður er að leika sinn fyrsta leik með íslenska landsliðinu í tæpt eitt og hálft ár.
Eiður verður 37 ára í september næstkomandi og hann er fjórði elsti leikmaðurinn til að skora í undankeppni EM frá upphafi samkvæmt tölfræði Infostrada.
Jari Litmanen (Finnland), John Aldridge (Írland) og Krasimir Balakov (Búlgaría) eru einu leikmennirnir sem hafa verið eldri þegar þeir hafa skorað í undankeppninni.
Athugasemdir