Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 28. mars 2015 16:14
Magnús Már Einarsson
Lengjubikarinn: Jeppe afgreiddi Keflavík
Jeppe er í stuði.
Jeppe er í stuði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík 0 - 2 Stjarnan
0-1 Jeppe Hansen
0-2 Jeppe Hansen

Stjarnan lagði Keflavík 2-0 í Lengjubikar karla í dag en leikið var í Reykjaneshöllinni.

Danski framherjinn Jeppe Hansen skoraði bæði mörk Stjörnunnar í síðari hálfleik.

Jeppe er í stuði þessa dagana en hann skoraði einnig sigurmarkið gegn Þór í vikunni.

Stjarnan er eftir leikinn með tíu stig í þriðja sæti í riðli þrju en Keflvíkingar eru með sjö stig í 5. sæti riðilsins.
Athugasemdir
banner