„Það var flott að ná sigri. Æfingaleikirnir hafa ekki verið upp á marga fiska hjá okkur en við sýndum í kvöld að það er erfitt að brjóta okkur niður. Ég man ekki eftir færi sem þeir fengu í leiknum," sagði fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson eftir 1-0 sigur á Írum í kvöld.
„Við vorum skipulagðir og það var það sem við lögðum upp með í dag. Þetta var frábært mark frá Hödda og við vorum að spila vel á köflum."
„Strákarnir sem komu inn í þetta voru ferskir og ég hrósa þeim mikið fyrir það. Þeir koma inn og vita nákvæmlega hvað þeir eru að gera."

Lestu um leikinn: Írland 0 - 1 Ísland
Ísland sigraði Kosóvó á föstudag á útivelli og svo Írland 1-0 í kvöld.
„Sigrar í báðum. Það er ekki hægt að biðja um meira. Það eru einhverjir sem eru að biðja um meira en ég held að tveir sigrar í tveimur leikjum segi sig sjálft," sagði Aron.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir