Derby að fá leikheimild - Framherji á leiðinni?
Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV, vonast til að markvörðurinn Derby Carillo verði kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn ÍA í 1. umferð Pepsi-deilarinnar á sunnudag. Derby, sem er landsliðsmarkvörður, spilaði æfingaleik með ÍBV gegn Breiðabliki um síðustu helgi. Hann er nú farinn frá Íslandi á meðan gengið er frá atvinnuleyfi fyrir hann.
„Þetta er spennandi dagur. Þetta virðist vera að ganga í gegn. Við skulum samt aldrei fagna of snemma í þessum málum. Þetta eru erfið mál sem taka langan tíma en ég vona að
þetta verði góður dagur," sagði Bjarni við Fótbolta.net í dag.
Eyjamenn hafa verið í leit að framherja og þau mál eru einnig að skýrast. „Það kemur líka í ljós í dag. Það er búið að hamast og hamast og við verðum að sjá til."
Bjarni segir að Eyjamenn séu spenntir fyrir leiknum gegn ÍA á sunnudag.
„Það er mikil spenna. Það er alltaf sami fiðringurinn í öllu. Maður verður meira var við það í samfélagin eins og Vestmannaeyjum þar sem fólk er vel með á nótunum. Við vonumst eftir góðu veðri og það er ekkert annað að gera en að reima á sig skóna," sagði Bjarni en eru allir klárir í slaginn?
„Það eru smotterís meiðsli en staðan er nokkuð góð nema Gunnar Heiðar og Matt Garner eru ekki klárir."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Fyrsta umferð Pepsi-deildarinnar:
sunnudagur 1. maí
16:00 Þróttur R.-FH (Þróttarvöllur)
17:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)
19:15 Breiðablik-Víkingur Ó. (Kópavogsvöllur)
20:00 Valur-Fjölnir (Valsvöllur)
mánudagur 2. maí
19:15 Stjarnan-Fylkir (Samsung völlurinn)
19:15 KR-Víkingur R. (Alvogenvöllurinn)
Athugasemdir