Undanúrslit Evrópudeildarinnar hefjast í kvöld þar sem leikirnir í undanúrslitum fara fram samtímis.
Liverpool heimsækir Villarreal á El Madrigal leikvanginn en á leið sinni í undanúrslitin hefur Liverpool slegið út Augsburg, Man Utd og Borussia Dortmund á meðan spænska liðið lagði Napoli, Bayer Leverkusen og Sparta Prag.
Hin viðureignin fer fram í Úkraínu þar sem ríkjandi Evrópudeildarmeistarar Sevilla verða í heimsókn en liðið hefur unnið keppnina síðustu tvö ár og alls unnið fjórum sinnum frá árinu 2006.
Shakhtar Donetsk hefur farið í gegnum Schalke, Anderlecht og Braga í Evrópudeildinni í vetur á meðan Sevilla vann Molde, Basel og Athletic Bilbao á leið sinni í undanúrslitin.

Evrópudeildin - Undanúrslit
19:05 Shakhtar Donetsk - Sevilla
19:05 Villarreal - Liverpool
Athugasemdir