Borussia Dortmund hefur staðfest að Mats Hummels, varnarmaður liðsins, hafi óskað eftir því að ganga til liðs við þýsku meistarana í Bayern í sumar.
Dortmund segist þó einungis ætla að selja Hummels fyrir risa upphæð.
„Mats Hummels hefur tilkynnt félaginu að hann óski eftir því að fara í sumar og ganga til liðs við Bayern Munchen," sagði í yfirlýsingu á vef Dortmund í dag.
Ekkert formlegt tilboð hefur komið frá Bayern í Hummels og ljóst er að hann fær ekki að fara ódýrt frá Dortmund.
Hinn 27 ára gamli Hummels ólst upp hjá Bayern en hann fór til Dortmund árið 2009.
Athugasemdir