fös 28. apríl 2017 20:30
Dagur Lárusson
Heimild: Goal 
Antonio Conte: Hjarta mitt er alltaf á Ítalíu
Mun Conte snúa strax aftur til Ítalíu?
Mun Conte snúa strax aftur til Ítalíu?
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, stjóri Chelsea, hefur gefið í skyn að hann gæti snúið aftur í Seríu A, en hann var spurður út í endurkomu eftir breytingar á eignarhaldi Inter og AC Milan.

Þessi fyrrum stjóri Juventus, tók við Chelsea síðastliðið haust og hefur gert frábærtlega hluti með liðið á sínu fyrst tímabili en liðið á mikla möguleika á að vinna bæði deild og bikar.

Í viðtali við við sjónvarpstöðina Emigratis var hann aðspurður hvort að hann myndi snúa aftur í Seríu A.

„Já ,alveg klárlega. Hjarta mitt er alltaf á Ítalíu.”

Þá var hann spurður út í mismuninn á launum á Englandi og Ítalíu þar sem hann svaraði: „Eru ekki komnir nýjir eigendur núna?”

Það verður að segjast eins og er að þessi ummæli hjá Conte eru heldur athyglisverð þar sem að hann hefur gert frábæra hluti með Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner