Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. apríl 2017 22:57
Hafliði Breiðfjörð
Brasilía mætir Íslandi í Laugardalnum í júní
Marta er ein besta fótboltakona heims. Hún gæti spilað á Laugardalsvelli í júní.
Marta er ein besta fótboltakona heims. Hún gæti spilað á Laugardalsvelli í júní.
Mynd: Getty Images
Brasilíska kvennalandsliðið kemur hingað til lands í júní og mætir íslenska landsliðinu í vináttulandsleik 13. júní næstkomandi.

KSÍ hefur ekkert tilkynnt um þennan landsleik en Emily Lima þjálfari brasilíska landsliðsins staðfesti leikinn í dag. KSÍ hafði þó staðfest að liðið myndi leika heimaleik fyrir Evrópumótið í sumar.

Þetta verður síðasti leikur íslenska liðsins fyrir Evrópumótið í Hollandi í sumar en Ísland hefur leik þar 18. júlí.

Ísland leikur gegn Írlandi í Dublin fimmtudaginn 8. júní næstkomandi og leikurinn við Brasilíu kemur svo hér heima fimm dögum síðar.

Brasilía er í 9. sæti á heimslista FIFA en Ísland í því átjánda. Brasilía er að fara að spila nokkra leiki við lið sem spila á EM. 10. júní gegn Spáni, 13. júní gegn Íslandi og 4. júlí gegn Þýskalandi.

Brasilía hefur á að skipa frábærum leikmönnum og ber þar hæst Mörtu sem hefur verið einn besti leikmaður heims í mörg ár. Í liðinu er einn leikmaður sem spilar á íslandi, Thaisa leikmaður Grindavíkur.
Athugasemdir
banner
banner
banner