Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 28. apríl 2017 20:47
Dagur Lárusson
Championship: Aron Einar spilaði allan leikinn í tapi
Newcastle sótti þrjú stig til Cardiff.
Newcastle sótti þrjú stig til Cardiff.
Mynd: Getty Images
Cardiff 0 - 2 Newcastle
0-1 Christian Atsu (55')
0-2 Isaac Hayden (65')

Það var einn leikur sem að fór fram í Championship deildinni í kvöld. Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff tók á móti Newcastle sem að tryggði sér sæti í ensku úrvaldsdeildinni á næstu leiktíð í síðasta leik sínum.

Eftir markalausan fyrri hálfleik þá var það hinn ungi Christan Atsu sem að kom gestunum yfir á 55. mínútu. Það var síðan Isaac Hayden sem að kom þeim í 2-0 , 10. mínutum seinna.

Aron Einar Gunnarson spilaði allan leikinn í liði Cardiff sem að siglir lignan sjó í 13. sæti deildarinnar með 59 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner