Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 28. apríl 2017 09:50
Magnús Már Einarsson
Lovren framlengir við Liverpool
Mynd: Getty Images
Króatíski varnarmaðurinn Dejan Lovren hefur skrifað undir nýjan langtíma samning við Liverpool.

Hinn 27 ára gamli Lovren hefur skorað fjögur mörk í 105 leikjum síðan hann kom til Liverpool frá Southampton sumarið 2014.

„Þetta er sérstakur dagur fyrir mig og fjölskyldu mína," sagði Lovren eftir undirskrift.

„Ég held að ég sé ánægðasti maður í hiemi í dag. Þetta er draumur að rætast."

„Það var alltaf draumur minn að vera eins lengi og ég get hjá eina félaginu sem ég elska og það er Liverpool."




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner