Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 28. apríl 2017 15:00
Magnús Már Einarsson
Manchester United getur sett met gegn Swansea
Mynd: Getty Images
Manchester United getur sett félagsmet um helgina þegar liðið mætir Swansea á heimavelli.

Manchester United setur met ef liðið tapar ekki í leiknum en þá eru komnir 25 leikir í röð án taps hjá liðinu í ensku úrvalsdeildinni.

Frá 4-0 tapi gegn Chelsea í október hefur United leikið 24 leiki í röð án taps. Liðið hefur unnið 13 af leikjunum og gert 11 jafntefli.

Liðið hefur nú þegar jafnað fyrra félagsmetið en það var sett tímabilið 2010/2011.

Flestir leikir í röð án taps hjá Man Utd
2010/11 24
2016/17 24
1993/94 22
1966/67 20
1998/99 20
2004/05 20
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner