fim 28. maí 2015 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Dailystar 
Gaitan til Man Utd?
Mynd: Getty Images
Manchester United eru að undirbúa tilboð sem að hljóðar upp á 21 milljón punda í Nicolas Gaitan leikmann Benfica samkvæmt enska götublaðinu Daily Star.

Daily Star hefur greint frá því að ensku meistararnir í Chelsea hafi verið að undirbúa tilboð í Gaitan og sem hluti af því tilboði hefði bakvörðurinn Wallace farið til Benfica í staðinn.

Það verður þó líklega ekkert af þvi hjá Chelsea, því leikmaðurinn virðist núna vera á leið til Man Utd samkvæmt Daily Star.

Gaitan hefur margoft verið orðaður við United og var hann nálægt því að ganga í raðir United árið 2012, en ekkert varð úr því þá.

Ef að þessar sögusagnir reynast réttar, verða þetta önnur sumarkaup United, en félagið samdi á dögunum við Memphis Depay leikmann PSV í Hollandi.
Athugasemdir
banner
banner