Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 28. maí 2015 21:52
Aron Elvar Finnsson
Jóhann Kristinn: Við ætlum að berjast um sigur í keppnunum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög sáttur bara, mjög sáttur,” sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þórs/KA eftir 5-2 sigur á Aftureldingu á Þórsvelli nú í kvöld.

„Fyrirfram bara erfitt og spenna, bæði útaf liðinu sem er að koma og aðstæðum, kalt í veðri og völlurinn erfiður en þegar leið á leikinn leið mér aðeins betur, en alls ekki nógu vel þegar við gáfum þeim tvö mörk,” sagði Jóhann einnig.

Þór/KA komst yfir í leiknum en Aftureldingarstelpur sýndu mikinn karakter og komust í 2-1. Heimakonur sýndu hins vegar einnig gríðarlegan karakter og skoruðu 4 mörk til viðbótar. „Ég er mjög sáttur og mér finnst Aftureldingarliðið hafa sýnt gríðarlega mikinn karakter hérna á útivelli að jafna og komast yfir. Þær sýna gott skipulag, mikla vinnusemi og maður finnur til með þeim að hafa ekki náð í eitthvað út úr þessum leik, planið hjá þeim var gott."

Aðspurður út í markmið sumarsins sagði Jóhann: „Við ætlum að reyna að berjast um að vinna í þeim keppnum sem eru í boði.”

Nánar er rætt við Jóhann hér að ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner