Miðjumaðurinn Samúel Kári Friðjónsson hefur skrifað undir nýjan samning hjá enska félaginu Reading.
Samúel, sem er 19 ára gamall, hefur verið að spila með U-21 liði félagsins og var fastamaður í liðinu í vetur.
Samúel, sem er 19 ára gamall, hefur verið að spila með U-21 liði félagsins og var fastamaður í liðinu í vetur.
„Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir nýjan samning og þetta var frábært tímabil með U-21 liðinu," sagði Samúel Kári við heimasíðu Reading.
U-21 lið Reading vann titil á síðustu leiktíð og komst alla leið í undanúrslit FA-bikarsins í ár.
Samúel kom til Reading árið 2013 frá Keflavík.
Athugasemdir