„Við ætluðum að koma hérna og ná í 3 stig og byrja tímabilið almennilega hjá okkur. Við sýndum það strax í fyrri hálfleik, komumst í forystu, börðumst og spiluðum fínan bolta og náðum að loka á þeirra hættur og svo framvegis, en það fór ekki svoleiðis í dag,” sagði Theodór Sveinjónsson þjálfari Aftureldingar eftir 5-2 tap gegn Þór/KA á Þórsvelli nú í kvöld.
Mist Elíasdóttir markvörður Aftureldingar fékk tvö gul spjöld og þar með rautt með u.þ.b. 10 sekúndna millibili. Aðspurður um atvikið sagði Theodór: „Ég er náttúrlega hundfúll yfir því að dómarinn taki þannig ákvörðun í þessum leik, að hann verði orsakavaldur að því hvernig leikurinn endar. Það er alltaf verið að tala um að menn eigi að lesa leikinn og svo framvegis og þarna fannst mér vanta að dómari leiksins myndi lesa leikinn og ekki taka svona ákvörðun í bræði.”
Aðspurður um markmið síns liðs í sumar sagði Theodór: „Að vinna næsta leik, markmið okkar eru náttúrlega bara þannig að vinna hvern einasta leik, halda áfram að vera í deild þeirra bestu, við erum með liðið til þess, við erum með leikmenn sem leggja hart að sér, mæta á æfingar, eru duglegar og fara eftir því sem við segjum.”
Nánar er rætt við Theodór hér að ofan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir