fim 28. maí 2015 17:30
Magnús Már Einarsson
Tremmel og Tate farnir frá Swansea
Tremmel.
Tremmel.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Alan Tate og markvörðurinn Gerhard Tremmel eru á förum frá Swansea.

Leikmennirnir verða samningslausir í sumar og þeir fá ekki nýjan samning.

Hinn 36 ára gamli Tremmel hefur verið varamarkvörður Swansea frá árinu 2011. Samtals spilaði Tremmel 52 leiki með Swansea en hann var ekki mjög sannfærandi í þeim.

Hinn 32 ára gamli Tate hefur spilað með Swansea síðan liðið bjargaði sér frá falli úr ensku D-deildinni árið 2002.

Samtals hefur Tate spilað tæplega 350 leiki með Swansea en undanfarin ár hefur hann mikið verið í láni hjá öðrum félögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner