Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 28. maí 2016 17:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Real Madrid og Atletico: Torres byrjar
Fernando Torres er í fremstu víglínu hjá Atletico
Fernando Torres er í fremstu víglínu hjá Atletico
Mynd: Getty Images
Byrjunarliðin fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eru klár og má sjá þau hér að neðan.

Í leiknum mætast eins og flestir vita nágrannarnir í Real Madrid og Atletico Madrid.

Byrjunarliðin koma svo sem ekki mikið á óvart, en hjá Real byrja þeir fremstir Bale, Benzema og Ronaldo, BBC.

Hjá Atletico byrjar Fernando Torres fremstur með Antoine Griezmann, en það sem kemur kannski helst á óvart er það að Stefan Savic byrjar í vörninni með Diego Godin. Fyrir fram var búist við því að Jose Gimenez myndi byrja, en svo er ekki.

Leikurinn hefst klukkan 18:45 og er í opinni dagsskrá á Stöð 2 Sport.

Byrjunarlið Real Madrid: Navas, Carvajal, Pepe, Ramos, Marcelo, Kroos, Casemiro, Modric, Bale, Ronaldo, Benzema.

Byrjunarlið Atletico Madrid: Oblak, Juanfran, Savic, Godin, Filipe Luis, Saul, Gabi, Augusto, Koke, Griezmann, Torres.


Athugasemdir
banner
banner
banner