Fanndís Friðriksdóttir var kampakát eftir sigur á Selfyssingum í Pepsi deildinni í dag. Fanndís skoraði sigurmark Blika við hornfána.
Selfyssingar fengu færi til þess að jafna leikinn eftir að hafa minnkað muninn. Fanndís segir þó að þær hafi ekki verið orðnar stressaðar.
„Nei, ekki beint stressaðar en þær settu auðvitað pressu á okkur og það var erfitt að spila á móti vindinum. Manni fannst erfitt að hlaupa fram með boltann, það komu bara 10 kíló á móti manni. Við kláruðum þetta, það var gott."
„Mér fannst við heilt yfir vera betra liðið en auðvitað settu þær pressu á okkur, enda með gott lið. Ég held að þetta hafi verið sanngjörn úrslit."
Blikar eiga Keflavík í næsta leik en Fanndís hefur engann tíma til þess að hugsa um það strax.
„Ég ætla ekki að byrja að pæla í því strax. Ég ætla að njóta þess að fara út með landsliðinu í skemmtilegt verkefni, svo pælum við í Keflavík."
Athugasemdir