Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   lau 28. maí 2016 15:49
Aron Elvar Finnsson
Jóhann Kristinn: Við spiluðum ekki 100% leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við töpuðum nánast leiknum,” sagði gríðarlega svekktur þjálfari Þórs/KA, Jóhann Kristinn Gunnarsson eftir 1-1 jafntefli við KR á Þórsvelli í dag.

Lestu um leikinn: Þór/KA 1 -  1 KR

Tölfræði leiksins var ótrúleg en heimastúlkur áttu 29 marktilraunir gegn 3 hjá gestunum.
„Já, þegar það vantar gæði, þá er ég ekki að tala um að það vanti gæði inn í liðið heldur vantaði bara að einstaklingar sem hafa gæði, væru að sýna gæði. Það er það sem liðinu okkar vantaði í dag og þess vegna kláruðum við ekki. Yfirburðirnir voru augljósir og það þarf ekkert að ræða þá, og vissu það allir sennilega fyrir leik líka.”

Aðspurður hvort mætti skrá þetta á einbeitingaleysi sagði Jóhann:
„Þetta er einhver blanda. Ég var nú að fara yfir þetta með þeim inn í klefanum rétt áður en ég kom hingað. Þetta er blanda af skorti af hinu og þessu, þetta er ekkert bara eitthvað eitt. Það er ekkert hægt að setja bara liðið á skotæfingar í viku og þá er allt inni. Þetta er bara hugarfarslegt, það er oft skortur á trú þegar maður er að fara í sendinguna eða skotið.”

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner