Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. maí 2016 18:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steve Bruce: Sem betur fer skoraði Diame
Bruce var nú sáttari en þetta eftir sigurinn í dag
Bruce var nú sáttari en þetta eftir sigurinn í dag
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Hull City, var að vonum ánægður eftir sigur liðsins á Sheffield Wednesday í úrslitum umspilsins í Championship-deildinni í dag.

Mohamed Diame skoraði sigurmark Hull í leiknum, en úrslitin þýða að Hull muni leika á ný á meðal þeirra bestu á næsta tímabili eftir aðeins eitt tímabil í Championship-deildinni.

„Þessi litlu gæði sem þarf til að útkljá stóra leiki, Diame sýndi þau og það vann leikinn fyrir okkur," sagði Bruce eftir leik.

„Við virtumst fá svo mörg góð tækifæri til þess að vinna leikinn. Sem betur fer skoraði Diame stórkostlegt mark og ég er gríðarlega ánægður fyrir hans hönd."

„Mér fannst við fá betri tækifæri - stóru leikmennirnir mínír stóðu sig sérstaklega vel í dag."

Athugasemdir
banner
banner
banner