Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 28. maí 2016 16:44
Þorsteinn Haukur Harðarson
Þórður: Gott að ná í fyrsta stigið
Þórður Þórðarson.
Þórður Þórðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
"Ég er nokkuð sáttur við stigið en ég hefði viljað fá þrjú stig enda spiluðum við vel," sagði Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, eftir 1-1 jafntefli gegn Fylki í Pepsídeild kvenna í dag.

Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  1 ÍA

"Mér fannst við stjórna leiknum nánast frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Við vissum hvaða leiðir Fylkisstelpurnar vildu fara og þær skoruðu reyndar eitt mark upp úr því. Eftir það var flest lokað."

Þetta var fyrsta stig ÍA í sumar.

"Það er gríðarlega mikilvægt að ná í fyrsta stigið. Við höfum farið vel yfir hlutina undanfarna daga og náðum loksins í stigið í dag."

Fyrir leikinn var skagaliðið stigalaust og ekki búið að skora mark. Þórður telur að vandamál liðsins liggi aðallega í sóknarleiknum.

"Það hefur helst vantað að skora mörk. Við vissum að við yrðum í vandræðum með það enda erum við þunnar fram á við. En nú er fyrsta markið komið og vonandi opnar það á fleiri mörk."
Athugasemdir
banner
banner