Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 28. maí 2017 13:00
Kristófer Kristjánsson
Chelsea vill fá Perisic - Berst við Man Utd um hann
Ivan Perisic
Ivan Perisic
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að Chelsea hafi áhuga á Ivan Perisic, vængmanni Inter.

Manchester United er talið hafa boðið 36 milljónir punda í Króatann en nú virðist sem Antonio Conte vilji blanda sér í þá baráttu.

Perisic er samningsbundinn inter til 2020 en félagið er talið viljugt til að selja fyrir rétta upphæð en hún er talin vera um 48 til 52 milljónir punda og segir Sky á Ítalíu að Chelsea hafi mikinn áhuga á leikmanninum.

Þessi 28 ára Króati gekk til liðs við Inter frá Wolfsburg árið 2015 en hann var þar áður á mála hjá Dortmund. Hann hefur spilað 55 landsleiki fyrir Króatíu og skorað í þeim 16 mörk.
Athugasemdir
banner
banner