Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 28. maí 2017 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kompany: Stones verður einn af bestu varnarmönnum heims
Mynd: Getty Images
Vincent Kompany hefur trú á því að John Stones eigi eftir að verða einn af bestu varnarmönnum í heimi með tímanum.

Stones er 23 ára gamall í dag en er gífurlega leikreyndur eftir að hafa spilað með Barnsley og Everton sem táningur.

„Ég efast ekki um að Stonesy verði einn af bestu varnarmönnum heims með tímanum," sagði Kompany.

„Hann er núna að upplifa margt nýtt og hann veit að hann á margt eftir ólært."

Stones þótti spila frábærlega á upphafi tímabilsins þegar Man City vann tíu leiki í röð og var á toppi deildarinnar.

„Hann mun njóta sín aftur um leið og liðið kemst aftur á sama skrið og á upphafi tímabilsins.

„Hann er góður með fótunum og er orðinn miklu sterkari og betri í einvígum."


Stones á 27 leiki að baki fyrir Man City og 17 fyrir A-landslið Englands.
Athugasemdir
banner