Albert Ingason var maður leiksins í kvöld í 1-0 sigri Fylkis á Víkingi. Fagnaðarlætin úr klefa Fylkismanna heyrðist langleiðina austur á Selfoss!
"Við vorum búnir að bíða lengi eftir þessu og djöfull er þetta sætt. Ætlum að venja okkur við þetta".
"Við vorum búnir að bíða lengi eftir þessu og djöfull er þetta sætt. Ætlum að venja okkur við þetta".
Eftir jafnan fyrri hálfleik kom Fylkisliðið öskrandi upp úr blokkunum í seinni hálfleik.
"Já, við hópuðum okkur saman í hálfleik, við ákváðum að það væri ekki nóg að tala saman inn í klefa og svo skilaði það sér ekki inn á völlinn, heldur framkvæma það sem við sögðumst ætla gera og það skóp þennan sigur.
Andinn í hópnum er góður og það höfum við framyfir önnur lið í sömu stöðu og við"
Nánar er rætt við Albert í viðtalinu sem fylgir fréttinni.
Athugasemdir