Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. júní 2016 12:54
Magnús Már Einarsson
Fleiri miðar til sölu fyrir Íslendinga í dag
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir Íslendingar sem hafa keypt miða á leiki á EM eiga ennþá möguleika á að fá miða á leikinn gegn Frakklandi í 8-liða úrslitunum á sunnudag.

Þeir Íslendingar sem hafa áður keypt leik á mótinu fá tölvupóst með sérstökum hlekk á miðasöluna þar sem þeir geta keypt miða á sérstök Íslendingasvæði sem verða á Stade de France á sunnudag.

Klara Bjart­marz, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, staðfestir þetta í samtali við vef Morgunblaðsins.

„Það gæti verið tals­vert af miðum sem er þarna í boði," segir Klara við mbl.is.

Miðað við viðbrögð frá Twitter eru einhverjir stuðningsmenn farnir að fá tölvupóstinn frá UEFA og miðasala í fullum gangi í Íslendingahólfið.

Almenn miðasala á leikinn hófst klukkan 12:00 en þar voru einungis 1000 miðar í boði og þeir fóru mjög fljótt út.



Athugasemdir
banner
banner