Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, er líka búinn að gleyma hvernig tilfinning það er að tapa landsleikjum.
Frammistaða Hannesar með landsliðinu undanfarið hefur verið lyginni líkust en íslenska liðið hefur ekki tapað í seinustu tólf leikjum sem Hannes hefur spilað.
Seinasti tapleikur landsliðsins með Hannes í markinu kom í 2-1 tapi gegn Tékklandi á útivelli í nóvember árið 2014.
Síðan þá hefur liðið spilað 12 leiki með Hannes í markinu án þess að tapa.
Goalkeeper Hannes Halldórsson is unbeaten in his last 12 internationals. 🙌 #ISL #EURO2016 pic.twitter.com/d8ul6O20J1
— UEFA EURO 2016 (@UEFAEURO) June 28, 2016
Athugasemdir