Belgíski miðjumaðurinn Radja Nainggolan segist ekki vera að hugsa um að skipta um lið í sumar þrátt fyrir þrálátan orðróm um að hann sé á leið til Chelsea.
Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum hefur Roma hafnað þrem tilboðum frá Chelsea en það síðasta hljóðaði upp á tæpar 40 milljónir punda.
„Núna er ég bara að einbeita mér að EM en ég er mjög ánægður hjá Roma. Ég hef eytt stórum hluta ævi minnar á Ítalíu og þetta er landið sem gerði mig að manni," segir Nainggolan.
Þessi 28 ára gamli miðjumaður hefur verið í lykilhlutverki hjá Belgum sem eru komnir í 8-liða úrslit EM.
Athugasemdir