Varnarmaðurinn, Matarr Nesta Jobe hefur verið lánaður til Víkings Ó. frá Val. Nesta lék með Ólafsvíkingum í 1. deildinni sumarið 2011 og spilaði þar sína fyrstu meistaraflokks leiki.
Undanfarin tvö sumur hefur hann spilað með Val í Pepsi-deildinni en hefur fengið fá tækifæri í sumar og einungis komið við sögu í tveimur leikjum.
Undanfarin tvö sumur hefur hann spilað með Val í Pepsi-deildinni en hefur fengið fá tækifæri í sumar og einungis komið við sögu í tveimur leikjum.
Hann er kominn með leikheimild með Víking Ó. og getur því leikið með liðinu í stórleik 1. deildarinnar á miðvikudaginn þegar Skagamenn koma í heimsókn í Ólafsvíkina.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir