Heimild: Daily Mail
Swansea hefur lagt inn fyrirspurn til Tottenham varðandi bakvörðinn Kyle Naughton.
Naughton er aftarlega í goggunarröðinni á White Hart Lane og koma Ben Davies til Tottenham frá Swansea fyrir helgi veikir stöðu hans enn frekar.
Naughton er aftarlega í goggunarröðinni á White Hart Lane og koma Ben Davies til Tottenham frá Swansea fyrir helgi veikir stöðu hans enn frekar.
Naughton var þegar að berjast við þá Danny Rose og Jan Verthongen um stöðu í liðinu, en þeir síðarnefndu munu hinsvegar báðir framlengja samninga sína á næstunni og er Naughton því á förum.
Swansea hefur þegar fengið Gylfa Þór Sigurðsson frá Tottenham í sumar á meðan Davies, auk marvkarðarins Michel Vorm, fóru hina leiðina. Það er því ekki útilokað að Naughton verði fjórði leikmaðurinn sem félögin skiptast á í sumar.
Athugasemdir