Heimild: Goal
Abou Diaby, fyrrum leikmaður Arsenal, er á leið til Marseille á frjálsri sölu eftir að hafa hafnað West Brom.
Marseille hefur staðfest samkomulag við leikmanninn, sem var látinn fara frá Arsenal í sumar eftir níu ára dvöl hjá félaginu.
Marseille hefur staðfest samkomulag við leikmanninn, sem var látinn fara frá Arsenal í sumar eftir níu ára dvöl hjá félaginu.
Upprunalega var talið að leikmaðurinn væri á leið til West Brom en hann hefur nú ákveðið að yfirgefa enska boltann.
"Olympique de Marseille og Abou Diaby hafa náð samkomulagi," segir á heimasíðu franska félagsins.
Talið er að Marseille muni borga leikmanninum eftir spiluðum leikjum, en hann hefur glímt við mikil meiðsli á sínum ferli.
Athugasemdir