þri 28. júlí 2015 12:52
Magnús Már Einarsson
Filipe Luis til Atletico Madrid (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hefur keypt vinstri bakvörðinn Filipe Luis aftur í sínar raðir frá Chelsea.

Luis kom til Chelsea frá Atletico Madrid fyrir einu ári síðan.

Þessi 29 ára gamli leikmaður náði ekki að festa sig í sessi hjá ensku meisturunum.

Luis spilaði samtals 26 leiki með Chelsea en nú er ljóst að þeir verða ekki fleiri.

Upphaflega var reiknað með því að Luis myndi fara aftur til Atletico á láni en félagið hefur nú keypt hann í sínar raðir.
Athugasemdir
banner
banner